29.03.2012 22:15

Ótitlað

emoticon PÁSKAMÓT

Páskamót Hestaeigendafélags Grundarfjarðar verður haldið laugardagin 7. apríl og hefst kl 10:00.  Keppt verður í hefðbundnum greinum, skráning á staðnum.

Sú nýbreytni verður tekin upp að keppt verður í liðakeppni á eftir barnahringnum.  Liðakeppnin felst í því að þrír eru saman í liði, sá fyrsti ríður einn hring á tölti/brokki, númer tvo hleypur á tveimur jafnfljótum hálfan hring og sest síðan í hjólbörur sem sá þriðji keyrir í mark.  Eitt lið verður í brautini í einu og keppt verður um besta tíman.  Ef hestur hleypur upp af gangi þá bætast við 15 sek á tíman.  Núna er bara að safna saman í lið, skíra það frumlegu nafni og hafa gaman
emoticon

27.03.2012 23:23

Ótitlað

Vinnukvöld í Fákaseli.

 

Fimmtudagskvöldið 29. mars kl 20:00 er stefnt að því að taka til hendini í Fákaseli.  Ætlunin er að mála allt að innan eins og þarf.  Síðan þarf seinnipart föstudagsins 30. mars til að þrífa aðeins til eftir málningarvinnuna og ganga frá.

 

Því fleiri sem mæta því styttri tíma tekur verkið.

 

Stjórnin

 

P.S. hver er fljótastur að teipa einn glugga???????

26.03.2012 11:44

Ótitlað

 

Árshátíð 

Árshátíð hesteigendafélags Grundarfjarðar verður haldin laugardaginn 7 apríl

 Húsið opnar kl :19:30 og borðhald hefst kl:20:00.

Boðið verður upp á

Í forrétt Sjávarréttir að hætti kokksins

Að venju gómsætt lambalæri og tilheyrandi í aðalrétt.

Í eftirrétt er frönsk súkkulaðikaka .

 

Þema kvöldsins er kántrý og verðlaun verða veitt fyrir flottasta búninginn.

Happdrætti verður og miðar seldir á staðnum,   500 kr miðinn,flottir vinningar.

Pantanir eru hjá  Bibbu í S: 6952198 fyrir

Kl: 21:00 fimmtudaginn 5, apríl, miðaverð er         kr 3500.

Árshátíðarnefndin.

19.03.2012 13:14

Ótitlað

Árshátíð
Takið daginn 7 apríl frá því þá verðu Árshátíðin okkar.

Árshátíðarnefndin

09.03.2012 20:55

rekstardegi frestað

rekstrar degi frestað um óákveðin tíma útaf slæmu veður útliti.

23.02.2012 15:04

Ótitlað

Aðalfundur Hestaeigendafélags Grundarfjarðar

verður haldin fimmtudaginn 1.mars 2012

kl 20:00.

Dagskrá fundarins er:

Skýrsla stjórnar.

Ársreikningar.

Kosningar.

Önnur mál.

Stjórnin.

20.02.2012 14:14

Reiðnámskeið

 REIÐNÁMSKEIÐ

Reiðnámskeið verður haldið í reiðhöllinni

 Grundarfirði.

Byrjað verður í febrúar og stendur  fram í apríl. Kennt er á Þriðjudögum og einu sinni föstudag og laugardag.

Kennari verður Guðmundur M Skúlason úr Hallkelsstaðarhlíð.

Boðið er upp á einkatíma fyrir einn til tvo á kr 5500 tíminn og almennt reiðnámskeið

Verð fyrir almennanámskeiðið er 17 þúsund   Árskorthafar börn og ungl greiða 15 þúsund 

Skráning hjá Óla Tryggva olafur@fsn.is

 síma 8918401  eða Guðmundur M. Skúlasonmummi@hallkelsstadahlid.is

Fyrstir panta fyrstir fá.

Síðasti skráningadagur er sunnudagur 26 feb.

Hægt er að geyma hesta yfir nótt og kostar sólahringur 700 kr nánari upplýsingar og pantanir.  Edda Sóley s:8930624






20.02.2012 12:22

Ársaðgangur 2012

Staðarfólk sem greitt hefur fyrir ársaðgang að Snæfellingshöllinni

 Skarphéðinn Ólafsson
 Bjarni Jónasar og Ólafía Hjálmarsdóttir
 Friðrik Tryggvason
 Heiðar Bjarnason
 Gunnar Kristjánsson
 Ólafur Tryggvason
 Kolbrún Grétarsdóttir X 2


Mánaðarkort 26.mars - 26. apríl
 Sædís Guðmundsdóttir

 Utan Grundarfjarðar:
 
Gunnar Tryggvason og Veronika
 


16.02.2012 17:21

Ótitlað

Vetradagskrá Hesteigendafélag Grundarfjarðar 2012

 

19. febrúar - Valli/ kökusala

1. mars - Aðalfundur Hesteigendafélag Grundarfjarðar

4. mars - Ólafía og Bjarni/kökusala

10. mars - Rekstrardagur

18. mars - Skarphéðinn/ kökusala

7. apríl - Páskamót og árshátíð

15. apríl - Kolla/kökusala

21. apríl - Videókvöld

29. apríl - Jón / kökusala

6. maí - Óli, Friðrik og Tryggvi /kökusala

20. maí - Gústi, Ditta og Gunnar/ kökusala

1. júní - Karlareið

9. júní - Sleppitúr

09.02.2012 23:59

Ótitlað

Folaldasýning í Söðulsholti

Laugardaginn 18.Febrúar kl. 13.00 ætlum við í Söðulsholti í samstarfi við Snæfelling að vera með folaldasýningu í Söðulsholti.. Hver skráning kostar 1000 kr, hægt er að skrá hjá Einari í síma 8993314 eða hafa samband á einar@sodulsholt.is.
Sýningin er opin öllum. Gefa þarf upp nafn,lit, fæðingarstað,föður, móðir, ræktanda og eiganda. Keppt verður í kynjaskiptum flokkum. Að þessu sinni ætlum við að biðja fólk að reyna stilla fjöldanum í hóf og að hver ræktandi sé ekki að koma með fleiri en 3-4 folöld. Skráningargjald greiðist inn á 0354-26-4027 og kt 540999-2019. Síðasti skráningardagur er fimmtudaginn 16.Febrúar.

Aðgangseyrir er 1000 kr og innifalið í því eru kaffiveitingar, frítt fyrir 12 ára og yngri og auðvitað vonumst við til að sjá sem flesta;)

Með kveðju

 

Dóri og Iðunn.
Söðulsholt
311 Borgarnes
sodulsholt@sodulsholt.is
www.sodulsholt.is
s:8995625

08.02.2012 22:59

Ótitlað

Framhaldsnámskeið
Frumtamning II
Dagana 18.-19. Febrúar í Grundarfirði
Námskeið þetta er eftirfari námskeiða sem Guðmundur M. Skúlason hefur haldið í Söðulsholti og Grundarfirði nú í vetur.

Á námskeiðinu verður haldið áfram þaðan sem frá var horfið.
Meðal þess sem farið verður í á námskeiðinu:
Uppbygging framhaldsþjálfunnar
Líkamsbeiting hestsins
Líkamsbeiting knapa
Gangsetning

Námskeiðið er ein helgi og fær hver nemandi fyrirlestra og tvo verklega tíma á hvert hross. Hver kennslustund er 30min.
Æskilegt er að nemendur fylgjist með kennslutímum hinna á námskeiðinu og með því safni sér enn meiri upplýsingum.

Á námskeiðið geta þátttakendur komið með einn eða tvo hesta hver.
Gjald fyrir eitt hross kr 7500
Gjald fyrir tvö hross kr 15000
Skráning og nánari upplýsingar hjá Guðmundi í síma 7702025 eða á netfangið mummi@hallkelsstadahlid.is
Síðasti skráningadagur 14. febrúar

08.02.2012 22:48

Ótitlað

Æskulýðsnefnd Snæfellings auglýsir

Sunnudaginn 12 febrúar kl. 14 hittumst við í Fákaseli í Grundarfirði.

Þar ætlum við að búa saman til Hestanammi, spila, horfa á mynd og að lokum verður pulsupartí.

Foreldrar eru hvattir til að koma með börn sín og eiga með okkur ánægjulega stund, þarna er góður vettvangur til að spjalla um hvað fleira við getum gert.

Æskulýðsnefnd þarf öfluga foreldra til liðs við sig til að efla starfið fyrir börnin okkar.

Til að vita hvað við þurfum kaupa mikið í hestanammið þurfum við að vita ca hvað margir koma,sendið okkur póst eða hringið olafur@fsn.is simi:8918401  asdissig@gmail.is  simi:8458828

30.01.2012 13:38

Ótitlað

Sæl öll

Ég vill vekja athygli á því að komin er gjaldskrá 2012 fyrir Snæfellingshöllina.

Eitt hvern næstu dag langar mig að hóa saman fólki til að laga gólf hallarinnar,vona að vel verði tekið í það þegar að því kemur.

Kveðja
Ólafur Tryggvason.

Verðskrá  í  Snæfellingshöllinni  2012

    
 Ársaðgangur fyrir einn fullorðinn:                                                                 
 15.000
 
Ársaðgangur fyrir maka eða ungmenni í sömu fjölskyldu:                                   
 7.000
 
Ársaðgangur fyrir félagsmenn í Snæfellingi utan Grundarfjarðar                         
 10.000
 
Ársaðgangur fyrir maka eða ungmenni í sömu fjölskyldu                                    
 5.000
 
Einkatími í eina klukkustund                                                                          
 2.000
 
Dagsleiga  fyrir viðburð.                                                                              
 15.000
 
Dagspassi í opna tíma                                                                                     
 500
 
Mánaðaraðgangur fyrir einn                                                                          
 5.000
 
50% álag fyrir þá sem ekki eru félagar.
    
    
Þegar keyptur er aðgangur skal leggja inn á reikning 0191-05-71590
    
í Landsbanka kt:580907-0590
    
    
Nánari upplýsingar eru hjá Gunnari Kristjánssyni í síma 898 0325
    
Ársaðgangur gildir almanaksárið
    

 

19.01.2012 19:49

Ótitlað

Sýnikennsla

Guðmar Þór Pétursson tamningamaður með meiru verður með sýnikennslu í Faxaborg miðvikudaginn 25. janúar 2012 kl. 20:00.

 Guðmar Þór þarf ekki að kynna fyrir hestamönnum og hann er nú orðinn ,,borgfirðingur" með aðstöðu að Staðarhúsum.

 Aðgangseyrir kr. 1.000 fyrir 16 ára og eldri.  Frítt fyrir 15 ára og yngri.

 

04.01.2012 13:04

Ótitlað

Frumtamninganámskeið

Tveggja helga námskeið í Grundarfirði:

Dagana 21.-22. og 28.-29. Janúar

Kennari: Guðmundur M. Skúlason Tamningamaður og Þjálfari FT

Á námskeiðinu kemur hver nemandi með eitt eða tvö trippi og vinnur með þau báðar helgarnar.

Allir þátttakendur fá heimaverkefni til að vinna með á milli helganna.

Það sem verður meðal annars farið yfir á námskeiðinu er:

Atferli hestsins (Hvernig hugsar hesturinn?)

Leiðtogahlutverk (hvað getur maður fengið hestinn til að gera?)

Undirbúningur fyrir frumtamningu (Undirbúningur er grunnur að góðum hlutum)

Frumtamning er grunnur að góðri tamningu á forsendum hestsins.

Tveir bóklegir tímar (sameiginlegir fyrir alla þátttakendur)

Átta verklegir tímar á hvern nemanda sem kemur með tvö trippi.

Fjórir verklegir tímar á hvern nemanda sem kemur með eitt trippi.

Samantekt í lok hvers dags þar sem farið er yfir verkefni dagsins og spurningum svarað.

Miðað er við að allir þátttakendur horfi á tímana hjá hinum og sjái mismunandi hestgerðir og hvernig þær bregðast við á mismunandi hátt.

Þá geta allir fengið mikið út úr námskeiðinu J

Námskeiðið kostar:

Nemandi með eitt hross 15000

Nemandi með tvö hross 25000

Síðasti skráningadagur 16. Janúar

Skráning og nánari upplýsingar í síma:7702025 (Guðmundur)

Eða á netfangið: mummi@hallkelsstadahlid.is

Flettingar í dag: 15
Gestir í dag: 10
Flettingar í gær: 19
Gestir í gær: 5
Samtals flettingar: 25476
Samtals gestir: 9568
Tölur uppfærðar: 16.5.2012 23:41:47